Um klukkan hálf eitt í nótt voru höfð afskipti af manni á bar í Breiðholti sem er grunaður um brot á lyfjalögum. Þegar lögreglumenn nálguðust manninn reyndi hann að henda frá sér poka sem innihélt lyfseðilsskyld lyf. Lögregla hefur áður haft afskipti af manninum vegna gruns um fíkniefnasölu.
Rétt uppúr klukkan fjögur var maður í annarlegu ástandi handtekinn við Leiðhamra í Grafarvogi. Maðurinn var vistaður í fangageymslu lögreglu sökum ástands.
Þá hafði lögregla í nógu að snúast í nótt við að hafa afskipti af ökumönnum grunuðum um ölvun við akstur eða akstur undir áhrifum fíkniefna.