Forritarar framtíðarinnar styrktu 11 grunnskóla

Frá afhendingu í Kársnesskóla. Á myndinni eru auk ónefndra barna …
Frá afhendingu í Kársnesskóla. Á myndinni eru auk ónefndra barna í tölvuveri, Arnheiður Guðmundsdóttir framkvæmdastjóri Ský og UTmessunnar og meðstjórnandi í Forriturum framtíðarinnar, Guðmundur Tómas Axelsson framkvæmdastjóri og meðstjórnandi í Forriturum Framtíðarinnar, Björg Baldursdóttir skólastjóri Kársnesskóla í Kópavogi, og Vala Nönn Gautsdóttir og Jódís Ólafsdóttir tölvukennarar í Kársnesskóla. Ljósmynd/FF/Anton Brink

Ellefu grunnskólar hlutu styrk úr sjóðnum Forritarar framtíðarinnar. Alls hlutu þeir um 6,5 milljónir króna. Tilgangur sjóðsins er að efla tækni- og forritunarkennslu í grunn- og framhaldsskólum landsins. 

Sjóðnum bárust 32 umsóknir í þessari úthlutun, flestar frá grunnskólum. Styrkir sjóðsins eru í formi tölvubúnaðar og fjárstyrks til þjálfunar kennara til að búa þá betur undir forritunarkennslu fyrir nemendur, samtals um sex og hálf milljón króna að virði. Þetta kemur fram í tilkynningu.  

Styrkirnir skiptast á milli ellefu skóla, þeir eru: Kársnesskóli, Höfðaskóli, Varmahlíðarskóli, Grunnskóli Borgarfjarðar eystri, Víkurskóli, Bíldudalsskóli, Vatnsendaskóli, Álfhólsskóli, Kópavogsskóli, Grunnskólinn í Hveragerði og Grunnskólinn í Þorlákshöfn. 

Frá stofnun sjóðsins árið 2014 hefur verið úthlutað til skóla landsins styrkjum fyrir hátt í 40 milljónir króna. Á árinu 2017 bættust við öflugir bakhjarlar Forritara framtíðarinnar en þeir eru fyrirtækin Marel og Advania.

„Þjóðir sem best standa hvað tækni varðar búa við ákveðið forskot. Forritun eða innsýn í forritun er nokkuð sem nýtist ungmennum til framtíðar, ekki ósvipað og fólk býr að því að hafa fengið kennslu í erlendum tungumálum, landafræði og öðrum námsgreinum,“ segir Sigfríður Sigurðardóttir, formaður stjórnar Forritara framtíðarinnar, í tilkynningu. 

Ný stjórn kosin

Á aðalfundi Forritara framtíðarinnar sem fram fór 22. desember síðastliðinn var kosin ný stjórn sjóðsins. Í stjórn sitja Arnheiður Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Ský og UTmessunnar, Bjarki Snær Bragason, deildarstjóri hugbúnaðardeildar hjá Össuri, Elsa Ágústsdóttir, markaðsstjóri Reiknistofu bankanna, Friðrik Guðjón Guðnason, forstöðumaður hjá Landsbankanum, og Sigfríður Sigurðardóttir, skrifstofustjóri CCP og formaður stjórnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert