Stakk af og faldi sig á verkstæði

Ljósmynd/Kristinn Freyr Jörundsson

Ökumaður bifreiðar sem ók í veg fyrir annan bíl á mikilli ferð í Keflavík í vikunni, og olli þar með árekstri, stakk af og faldi sig og bifreið sína á verkstæði. Lögreglan á Suðurnesjum hafði uppi á manninum sem viðurkenndi að hafa stungið af. Þá var hann réttindalaus í þokkabót.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni.

Annar ökumaður missti stjórn á bifreið sinni í hálku og endaði hún á ljósastaur og í blómabeði í Njarðvík.

Þá hafnaði bifreið utan vegar eftir að ökumaðurinn hafði mætt bifreið sem ekið var eftir Norðurljósavegi miðjum með háu ljósin á. Hann missti stjórn á bifreiðinni þegar hann sveigði henni til hliðar til að koma í veg fyrir árekstur. Hún var mikið skemmd en ökumaðurinn slapp án meiðsla.

Fleiri óhöpp urðu í umferðinni í vikunni en engin alvarleg slys á fólki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert