Jarðvegsgerlar í kalda vatninu í Reykjavík

Hverfin þar sem mengunin nær til á við um öll …
Hverfin þar sem mengunin nær til á við um öll hverfi borgarinnar nema Grafarvog, Norðlingaholt, Úlfarsárdal, Kjalarnes auk Mosfellsbæjar. mbl.is/Hjörtur

Fjölgun jarðvegsgerla hefur mælst í kalda vatninu í Reykjavík. Í tilkynningu frá Veitum kemur fram að tvö sýni sem Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur tók 12. janúar stóðust ekki viðmið í reglugerð.

„Í varúðarskyni mælir Heilbrigðiseftirlitið með því að neysluvatn í vissum hverfum borgarinnar sé soðið ef um neytendur er að ræða sem eru viðkvæmir,“ segir í tilkynningunni. Með viðkvæmum er átt við þá sem eru til dæmis með lélegt ónæmiskerfi, ungbörn, aldraða eða fólk með undirliggjandi sjúkdóma.

Hverfin sem mengunin nær til eru öll hverfi borgarinnar nema Grafarvogur, Norðlingaholt, Úlfarsárdalur og Kjalarnes auk Mosfellsbær, sem fá vatn frá öðrum svæðum í Heiðmörk þar sem ekki hefur mælst gerlafjöldi yfir viðmiðunarmörkum.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík, segir í samtali við mbl.is að hann sé með öll gögn undir höndum og muni kynna sér þau vel og að brugðist verði við með viðeigandi hætti, meðal annars með því að hafa samband við smitsjúkdómalækni. 

Líkleg ástæða fyrir fráviki í gerlamagni er mikil hlákutíð undanfarið í kjölfar langs frostakafla. Við slíkar aðstæður getur yfirborðsvatn komist í grunnvatn og flutt með sér gerla. Ef gerlamagn í borholu mælist yfir mörkum er vatnstöku úr henni hætt.

„En nú er sú staða komin upp að búið er að taka það margar holur úr rekstri Veitna að ekki er hægt að anna vatnsþörf viðskiptavina ef þær verða fleiri. Því þurfum við nú að nýta eina holu þar sem fjöldi jarðvegsgerla hefur mælst yfir mörkum. Í þeirri holu hafa ekki fundist E. coli-erlar,“ segir í tilkynningunni. 

Sýni verða tekin áfram daglega, bæði úr borholum af Veitum og af Heilbrigðiseftirlitinu úr dreifikerfinu, þar til ástand neysluvatnsins er viðunandi. „Tilkynnt verður þegar ástand vatnsins stenst reglugerð nr. 536/2001 en skv. henni er um óeðlilegt ástand að ræða og er vísbending um að ofanvatn hafi borist í vatnið,“ segir í tilkynningu frá Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert