Þrír eru slasaðir eftir tveggja bíla árekstur á mótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar (við golfæfingasvæðið Bása í Grafarholti). Búast má við miklum töfum á umferð.
Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra í slökkviliði höfuðborgarsvæðisins varð slysið um áttaleytið og eru fyrstu sjúkrabílarnir komnir á vettvang sem og lögregla.
Suðurlandsvegur er lokaður við Hádegismóa vegna umferðarslyss og ökumenn beðnir um fara í gegnum Árbæ og Breiðholtsbraut, segir í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Búið er að flytja þrjá úr bifreiðunum á sjúkrahús. Einn þeirra er beinbrotinn en hinir tveir minna slasaðir, samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins.