Vefsíða um háskólanám eftir iðnnám

Háskólinn í Reykjavík.
Háskólinn í Reykjavík. Ljósmynd/HR

Háskólinn í Reykjavík hefur opnað nýja vefsíðu um háskólanám fyrir iðnmenntaða; www.hr.is/idn. Tilgangurinn með síðunni er að kynna fjölbreytta möguleika þeirra sem lokið hafa iðn- og tækninámi, til háskólanáms við HR.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá HR.

Á síðunni eru teknar saman upplýsingar um vinsælar námsbrautir í HR hjá fólki með iðnmenntun, leiðarvísir um hvaða inntökuskilyrði þarf að uppfylla fyrir mismunandi námsbrautir, ásamt reynslusögum nemenda sem sýna fjölbreyttan menntaferil nemenda í HR.

Í tilkynningunni segir að íslenskt atvinnulíf kalli eftir fólki með góða verkþekkingu og það sé mikilvægt að benda ungu fólki á þá fjölbreyttu möguleika sem iðn- og tækninám veitir.

„Eftirspurnin á vinnumarkaði eftir einstaklingum með tæknigrunn og sérhæfingu úr háskóla er mjög mikil og á líklega enn eftir að aukast í framtíðinni. Því er vert að leggja áherslu á að iðnmenntun lokar engum dyrum varðandi áframhaldandi nám, heldur er þvert á móti góður grunnur fyrir áframhaldandi nám á háskólastigi,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert