Karlmaður á fimmtugsaldri er grunaður um að hafa brotið gegn ungum pilti um nokkurra ára skeið þegar pilturinn var á barnsaldri og unglingur.
Maðurinn var á föstudag úrskurðaður í vikulangt gæsluvarðhald í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á meintum kynferðisbrotum hans, segir í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag. Í gær var fjallað um á forsíðu blaðsins að karl á sextugsaldri hefði verið úrskurðaður í gæsluvarðhald grunaður um brot gegn sautján ára pilti um nokkurt skeið og hugsanlega fleiri börnum.
Fyrst var fjallað um það mál í fréttum Stöðvar 2 á föstudag.