Hreindýrakvóti aukinn um 10%

Hreindýrastofninn á Íslandi telur um 6.000 dýr. Heimilt verður að …
Hreindýrastofninn á Íslandi telur um 6.000 dýr. Heimilt verður að veiða 1.450 dýr í ár. Ljósmynd/Sigurður Ægisson

Heimilt verður að veiða allt að 1.450 hreindýr á þessu ári, en það er fjölgun um 135 dýr frá hreindýrakvóta fyrra árs, eða tæplega 10%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Umhverfisstofnun, en umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið hreindýrakvóta fyrir þetta ár.

Er kvótanum í ár skipt þannig að heimilt er að veiða 1.061 kú og 389 tarfa. Er fjöldanum skipt niður á níu veiðisvæði.

Heimildirnar eru veittar með fyrirvara um að ekki verði verulegar breytingar á stofnstærð fram að veiðum sem kalli á endurskoðun veiðiheimilda. Jafnframt er ráðuneytið með í skoðun hugsanleg áhrif kúaveiða á kálfa og álag og áhrif þeirra sem mögulega getur haft áhrif að ákvarðanatöku um veiðitíma til framtíðar. 

Veiðitími tarfa er frá 1. ágúst til og með 15. september, en þó getur Umhverfisstofnun heimilað veiðar á törfum frá og með 15. júlí. Veiðitími kúa er frá 1. ágúst til 20. september.

Veturgamlir tarfar eru alfriðaðir og miðast tarfaveiði því við tveggja vetra og eldri tarfa. Óheimilt er að veiða kálfa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert