Jarðskjálfti sem mældist 3,3 stig varð á Reykjanestá klukkan korter yfir eitt í nótt. Varð skjálftinn um 12 km vestur af Grindavík.
Fram kemur á vef Veðurstofunnar að jarðskjálftans varð vart í byggð, m.a. í Grindavík og á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrir mun minni skjálftar fylgdu í kjölfarið.