Hætta í vor að fljúga milli Akureyrar og Keflavíkur

Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Air Iceland Connect.
Árni Gunnarsson framkvæmdastjóri Air Iceland Connect. mbl.is/Árni Sæberg

Frá miðjum maí hættir flugfélagið Air Iceland Connect að fljúga milli Akureyrar og Keflavíkur. Á sama tíma hættir einnig Icelandair að fljúga til Belfast í Norður-Írlandi og Aberdeen í Skotlandi. Ástæðan er sú að ekki er næg eftirspurn eftir fluginu, að sögn Árna Gunnarssyni, framkvæmdastjóra Air Iceland Connect. Túristi greindi fyrst frá

Að meðaltali er flogið fimm til sex sinnum í viku frá Akureyri til Keflavíkur til að ná morgunfluginu frá Keflavík. Þetta er samkvæmt vetraráætlun flugfélagsins. 

Árni bendir á að efnahagsástand Bretlands, einkum eftir Brexit, hefur sett strik í reikninginn.  

Breytingar verða einnig á flugi flugfélagsins til Grænlands og það mun ekki fljúga til Kangerlussuaq í sumar og ferðirnar til Narsarsuaq færast til Reykjavíkurflugvallar. Aðrar áætlanir til Grænlands munu halda sér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert