Hans Steinar nýr upplýsingafulltrúi SOS

Hans Steinar Bjarnason.
Hans Steinar Bjarnason.

Hans Steinar Bjarnason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi SOS Barnaþorpanna á Íslandi.

Þetta kemur fram á vef félagsins. Þar segir ennfremur, alls hafi borist 61 umsókn um starfið.

Fram kemur, að Hans Steinar hafi víðtæka reynslu úr fjölmiðlum, nú síðast sem íþróttafréttamaður á RÚV. Áður gegndi hann starfi íþróttafréttamanns og þáttastjórnanda á Stöð 2, Stöð 2 Sport og Sýn sem og dagskrárgerðarmanns og útsendingastjóra í útvarpi og sjónvarpi svo fátt eitt sé nefnt.

„Það hefur í talsverðan tíma blundað í mér að fást við nýjar áskoranir eftir rúm 28 ár í fjölmiðlabransanum,“  er haft eftir Hans Steinari í tilkynningunni. 

Fráfarandi upplýsingafulltrúi SOS Barnaþorpanna, Sunna Stefánsdóttir, lætur af störfum í lok febrúar og hverfur þá til starfa hjá Garðabæ. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert