„Ósjálfráð viðbrögð að beygja frá“

Betur fór en á horfðist á Eyrarbakkavegi í morgun.
Betur fór en á horfðist á Eyrarbakkavegi í morgun. Skjáskot úr myndbandinu

„Sem betur fer fer ég til vinstri en ekki hægri. Ég beið eftir skellinum en þetta slapp fyrir horn,“ segir Gunnlaugur Helgason, sem starfar sem verkstjóri á Steypustöðinni á Selfossi.

Litlu munaði að harður árekstur yrði á Eyrarbakkavegi laust fyrir klukkan átta í morgun þegar Gunnlaugur var á leið til vinnu frá Eyrarbakka.

Að sögn Gunnlaugs missti hinn ökumaðurinn bílinn sinn upp úr hjólförunum með þeim afleiðingum að hann lenti á öfugum vegarhelmingi og stefndi beint í áttina að honum.

„Ég hafði ekki tíma til að hugsa. Þetta voru ósjálfráð viðbrögð að beygja frá. Ef ég hefði verið á stærri og þyngri bíl hefði ekki þurfti að spyrja að því.“

Gunnlaugur segir hjólförin vera djúp á Eyrarbakkavegi. Hinn ökumaðurinn hafi misst bílinn aðeins til hliðar og í slabbið, sem var um 10 til 15 sentímetrar að hans sögn. Við það lenti hann á öfugum vegarhelmingi.

Gunnlaugur kveðst hafa snúið við og stöðvað bílinn sinn eftir atvikið og reynt að gá hvort hinn bíllinn hefði farið út af veginum en sá hann hvergi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert