Launþegum fjölgar í byggingariðnaði

Í janúar 2018 voru 2.552 launagreiðendur í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð …
Í janúar 2018 voru 2.552 launagreiðendur í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og launþegarnir um 12.400. AFP

Launþegum hefur farið fjölgandi í byggingariðnaði ef litið er til þess fjölda sem starfaði í iðnaðinum í janúar í ár og á sama tíma fyrir ári. Launþegum í sjávarútvegi hefur hins vegar fækkað undanfarin ár að því er fram kemur í frétt á vef Hagstofunnar.

Á 12 mánaða tímabili, frá febrúar 2017 til janúar 2018, voru að jafnaði 17.644 launagreiðendur á Íslandi og hafði launagreiðendum fjölgað um 648, eða 3,8%, frá 12 mánuðum þar á undan. Greiddu launagreiðendurnir að meðaltali um 189.200 einstaklingum laun að meðaltali fyrir þetta sama tímabil, sem er 4,7% aukning, eða um 8.400 samanborið við 12 mánaða tímabil þar á undan.

Í sjávarútvegi hefur launþegum fækkað undanfarin ár. Í ársbyrjun 2017 var sjómannaverkfall og því voru launþegar í sjávarútvegi fyrstu mánuði þess árs mun færri en venjulega. Það gefur því réttari mynd að bera fjölda launþega í janúar 2018 saman við fjöldann tveimur árum fyrr. Launþegum í sjávarútvegi fækkað þó um 8% á þessu tveggja ára tímabili.

Í janúar 2018 voru 2.552 launagreiðendur í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð og launþegarnir um 12.400. Hafði launþegum fjölgað um 1.300, eða um 12%, borið saman við janúar 2017. Launagreiðendur í ferðaþjónustu voru í janúar 1.686 og launþegar um 24.600 launþegar og hafði launþegum fjölgað um 900 (4%) á einu ári. Á þessu sama tímabili hefur launþegum í heild fjölgað um 7.000 (4%).

Fram kemur í frétt Hagstofunnar að tölurnar taki ekki til einyrkja sem eru með rekstur á eigin kennitölu og greiða sjálfum sér laun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert