Ofurölvi veittist að fólki

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Karlmaður var vistaður í fangageymslu lögreglu eftir að hann var handtekinn í Austurstræti á þriðja tímanum í nótt þar sem hann var að veitast að fólki. Í dagbók lögreglu segir að maðurinn hafi verið vistaður í fangageymslu og verði þar uns ástand hans lagast.

Lögregla stöðvaði bifreið við Fjarðargötu laust eftir miðnætti en ökumaður er grunaður um ölvun við akstur.

Einnig voru höfð afskipti af ökumanni á Suðurlandsbraut en lögreglu barst tilkynning um ölvaðan ökumann þar á þriðja tímanum í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert