Erilsamt hjá lögreglunni á Akureyri

mbl.is/Hjörtur

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt og þurfti lögreglan m.a. að keyra nokkra heim til sín eftir skemmtan næturinnar. Engir þurftu þó að gista í fangaklefa þessa nóttina.

Þá voru tveir stöðvaðir fyrir að aka undir áhrifum fíkniefna. Fyrri bíllinn var stöðvaður um miðnætti inni á Akureyri og sá síðari laust fyrir tvö í nótt. Sá ökumaður reyndist bæði undir áhrifum áfengis og fíkniefna, en auk þess voru hann og farþegi bílsins með lítils háttar magn af fíkniefnum á sér.

Þá var einn ökumaður tekinn á áttunda tímanum í morgun fyrir ölvunarakstur.

Allir voru ökumennirnir látnir lausir að lokinni skýrslutöku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert