Hundrað ára rakarastóll

Kolbeinn Pálsson og Þorberg Ólafsson bregða á leik í stólnum.
Kolbeinn Pálsson og Þorberg Ólafsson bregða á leik í stólnum. mbl.is/Hari

„Það má alveg slá því föstu að þetta sé stóll úr rakarastofunni í Eimskipafélagshúsinu og mjög líklega einn af stólunum sem voru þar þegar stofan var opnuð árið 1921,“ segja Þorberg Ólafsson og Kolbeinn Hermann Pálsson, sem báðir störfuðu á stofunni sem afi þess síðarnefnda, Sigurður Ólafsson, og síðar faðir hans, Páll Sigurðsson, ráku. Þegar Þorberg og Kolbeinn hófu störf á stofunni á sjöunda áratugnum voru komnir nýir stólar af gerðinni UG en stóllinn á myndinni er af gerðinni REX.

Tilefni heimsóknar Þorbergs og Kolbeins í geymsluhúsnæði í Reykjavík að skoða téðan stól er símtal frá eiganda hans, Kristbirni Haukssyni, sem hafði samband við Morgunblaðið eftir að grein um rakarastofuna í Eimskipafélagshúsinu birtist fyrir nokkrum vikum. Kristbjörn keypti stólinn á Akureyri fyrir tveimur árum en þar á undan var hann um tíma á Ísafirði. „Ég ætlaði að hafa hann heima og hafa það huggulegt í honum en hann er allt of þungur, um 400 kg, þannig að ég kom honum vel fyrir hérna í geymslunni,“ segir Kristbjörn sem safnar gömlum hlutum af ýmsu tagi, meðal annars bílum og leikföngum.

Stóllinn er enn þá hin huggulegasta mubla.
Stóllinn er enn þá hin huggulegasta mubla. mbl.is/Hari
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert