Ekið á gangandi vegfaranda

Bílnum var ekið yfir á grænu ljósi.
Bílnum var ekið yfir á grænu ljósi. mbl.is/RAX

Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Hamrahlíðar í gærkvöldi. Tilkynning um slysið barst lögreglu um klukkan 18.30.

Maðurinn sem ekið var á kvartaði undan eymslum í fæti, hendi og baki. Hann var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landspítalans til aðhlynningar og var talið að meiðsl hans væru ekki alvarleg. 

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu sögðu vitni á vettvangi að bílnum hafi verið ekið yfir gatnamótin á grænu ljósi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert