Söluverð yfirleitt undir ásettu verði

mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

4.323 íbúðir voru í byggingu hér á landi í lok síðasta árs, sem eru ríflega þúsund fleiri íbúðir en voru í byggingu í lok árs 2016. Fjöldi íbúða í byggingu á landsvísu er nú yfir langtímameðaltali í fyrsta skipti síðan árið 2011, en frá árinu 1970 hafa að jafnaði verið tæplega 4.000 íbúðir í byggingu á landinu öllu að meðaltali.

Í fyrsta skipti síðan árið 2007 fjölgar íbúðum í byggingu utan höfuðborgarsvæðisins milli ára. Þetta er á meðal þess sem fram kemur í nýrri mánaðarskýrslu Íbúðalánasjóðs í apríl.

Undanfarna mánuði hefur íbúðaverð á landsbyggðinni hækkað töluvert hraðar en íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu. Tólf mánaða hækkun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu mælist nú 10,6% miðað við vísitölu íbúðaverðs sem er reiknuð af Þjóðskrá Íslands.

Ásett verð fasteigna á höfuðborgarsvæðinu hefur almennt hækkað í svipuðum takti eða nokkuð meira en söluverð undanfarin fjögur ár. Undantekning frá því var þó á fyrri hluta síðasta árs þegar hækkun söluverðs íbúða tók talsvert fram úr hækkun ásetts verðs. Nú er hins vegar svo komið að tólf mánaða hækkun ásetts verðs er orðin áþekk hækkun söluverðs.

Meðalsölutími hefur lengst

Undanfarna 12 mánuði hefur vísitala ásetts verðs á höfuðborgarsvæðinu, sem reiknuð er af hagdeild, hækkað um 10,2% og í febrúar hækkaði hún um 0,6%. Á undanförnum mánuðum hefur hlutfall þeirra viðskipta sem eiga sér stað undir, á og yfir ásettu verði náð meira jafnvægi eftir tímabundna en mikla fjölgun íbúðakaupa yfir ásettu verði í fyrra.

Greining hagdeildar á fasteignaauglýsingum og kaupsamningum bendir til þess að 9% íbúðaviðskipta á höfuðborgarsvæðinu í febrúar hafi verið yfir ásettu verði, 12% á ásettu verði og 79% undir ásettu verði. Þessi hlutföll eru sem stendur nálægt meðaltali tímabilsins frá árinu 2012.

Meðalsölutími hefur lengst og er nú svipaður og 2015-2016 Í mars var 594 kaupsamningum um íbúðir á höfuðborgarsvæðinu þinglýst en það er mesti fjöldi síðan í nóvember. 273 kaupsamningum um íbúðir á landsbyggðinni var þinglýst í mars sem er svipaður fjöldi og í febrúar. Mánaðarlegur fjöldi kaupsamninga, bæði á höfuðborgarsvæðinu og utan þess, hefur sveiflast nokkuð undanfarna mánuði án þess að hægt sé að greina sérstaka leitni til fjölgunar eða fækkunar samninga.

Dýrast að leigja í 101

Á undanförnum mánuðum hefur hlutfall þeirra íbúðaviðskipta sem eiga sér yfir ásettu verði náð meira jafnvægi eftir tímabundna en mikla fjölgun íbúðakaupa yfir ásettu verði í fyrra. Hlutfall viðskipta yfir ásettu verði hefur verið í kringum 10% undanfarna mánuði, sem er svipað og verið hefur að meðaltali síðan 2012. Meðalsölutími eigna á höfuðborgarsvæðinu lengdist hins vegar lítillega á fyrstu tveimur mánuðum þessa árs og mælist nú svipaður eins og árin 2015-2016.

Leiguverð íbúðarhúsnæðis er nú að meðaltali um 2.000 krónur á landinu öllu, en 2.300 krónur á höfuðborgarsvæðinu. Póstnúmerið 101 er það hverfi á höfuðborgarsvæðinu þar sem leiguverð er almennt hæst. Á landsbyggðinni er leiguverð hvað hæst á Akureyri.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert