Guðmundur Sævar Sævarsson, varaþingmaður Flokks fólksins, hefur sagt skilið við flokkinn í kjölfar atviks sem varð í boði með öðrum þingmönnum á Hótel Sögu á föstudagskvöld. Hann var m.a. sakaður um að hafa áreitt konur.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Guðmundur hefur sent á fjölmiðla. Þar kemur ennfremur fram að hann átti sig á því að hann eigi við áfengisvanda að etja. Hann segist hafa beðið innilegar afsökunar á hegðuninni „enda skömmin mín“.
Yfirlýsing Guðmundar í heild sinni:
„Í ljósi þeirra umræðna sem hefur verið vil ég endurtaka að, ég þáði að fara í matarboð á vegum forseta þingsins.
Í tilteknum matarboði drakk ég úr hófi og hagaði mér ósæmilega, Á því hef ég beðið innilegar afsökunar, enda skömmin min og er ég og mun vera ævanlega þakklátur aðilum að hafa tekið við henni.
Á sama tíma hef ég gert mér fulla grein fyrir því að ég á við áfengisvandamál að stríða sem ég er að fá aðstoð við, en á eftir langa vegferð þar. Er klárt að ég þarf að huga að minni eigin vegferð og opinber staða er ekki rétti vettvangurinn fyrir mig í dag. Óska ég Ingu Sæland allra besta, en stendur hún fyrir góðu málefni og flokki.
Annað sem hefur komið í kjölfarið er ekki svaravert og kemur af allt öðru meiði.
Langar mig að biðja um að geta rétt nú við lífi mínu í friði til að verða mér og börnum mínum að sóma, án áfengis.“