Píratar í Kópavogi harma vinnubrögð bæjarstjóra Kópavogsbæjar í samskiptum við hjónin Guðmund R. Einarsson og Lilju Katrínu Gunnarsdóttur vegna greiðslna sem skráðar voru á dánarbú föður Guðmundar.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem Píratar í Kópavogi sendu frá sér í dag, en þar segir að málið sé allt hið undarlegasta. Hjónin hafi verið rukkuð um milljón króna vegna greiðslu frá Kópavogsbæ á kennitölu dánarbús föðurins. Guðmundur og Lilja hafi þó aldrei fengið þá greiðslu, heldur hafi bærinn greitt féð inn á vörslureikning lögmanns fyrrverandi eiginkonu hins látna. Maðurinn hafi hins vegar verið einhleypur og skráður sem slíkur þegar hann lést.
„Einnig hefur komið fram að Kópavogsbær greiddi fé inn á reikning aðila sem ekkert tilkall átti til þess,“ segir í tilkynningunni.
Kjarnastefna Pírata sé að allt vald skuli nálgast af virðingu og af auðmýkt gagnvart öllum umbjóðendum. Slík nálgun hafi hins vegar verið víðsfjarri í þessu tiltekna máli og bæjarstjóra, Ármann Kr. Ólafsson, setji „niður með framkomu sinni í fjölmiðlum, hegðun sem engum fulltrúa sem annt er um umbjóðendur sína sýnir.“
Gagnrýna Píratar í Kópavogi að bæjarstóri hafi kallað konuna „ekkju” opinberlega í viðtali í Bítinu á Bylgjunni á dögunum, þrátt fyrir að vita betur, sem og fyrir að hafa sakað hjónin um dónaskap í sinn garð í beinni útsendingu.
„Viljandi skrumskæling á augljósum mistökum í stjórnsýslu bæjarins opinberlega getur aldrei verið boðleg framkoma að hálfu nokkurs, hvað þá æðsta manni þess, bæjarstjórans Ármanns Kr. Ólafssonar,“ segir í tilkynningunni.
Hjónin hafi einfaldlega óskað eftir afsökunarbeiðni vegna mistaka Kópavogsbæjar varðandi greiðsluna, að tillit sé tekið til aðstæðna og og óskað eftir skilningi á persónulegum grundvelli, en þeirri beiðni hafi verið mætt af tómlæti.
Framkoma bæjarstjórans og lögfræðinga, sem hótað hafa hjónunum dómsmáli, hafi „opinberað djúpstæða gjá á milli íbúa Kópavogs og stjórnsýslunnar að vinna með íbúum í sameiningu, með skilning og auðmýkt í samskiptum.“
Uppfært klukkan 17:25
Kópavogsbær vill koma eftirfarandi áréttingu á framfæri vegna yfirlýsingar Pírata í Kópavogi:
„Greiðsla makalauna (lausnarlauna) er einungis greidd til eftirlifandi maka en ekki til dánarbús. Greiðslan er greidd í nafni hins látna. Makalaun er greidd til eftirlifandi maka samkvæmt ákvæðum kjarasamninga. Í umræddu tilfelli féllst Kópavogsbær á að greiða makalaun að undangenginni rannsókn og á grundvelli upplýsinga sem lagðar voru fram vegna málsins og sýndu fram á réttmæti kröfu sem gerð var f.h. eftirlifandi maka. Við útgreiðslu makalaunanna stóð Kópavogsbær skil á sköttum líkt og við hefðbundna launagreiðslu.“