Dauðafæri fyrir íslenskuna

Skrafl fyrir krakka. Reynir Hjálmarsson ætlar að gefa út Öskju …
Skrafl fyrir krakka. Reynir Hjálmarsson ætlar að gefa út Öskju svo að börnin geti spilað og verið með. mbl.is/Kristinn Magnússon

Skrafl er orðaleikur sem hefur notið vinsælda á Íslandi sem og víða annars staðar í heiminum. Reynir Hjálmarsson, bókmenntafræðingur, þýðandi og útgefandi í Garðabænum, er formaður Skraflfélags Íslands og fyrrverandi Íslandsmeistari í skrafli.

Reynir er annar af höfundum og útgefendum Kröflu, íslensks skrafls, sem áður hefur komið út og er sniðið að íslensku máli, en enska útgáfan er ekki með rétt stafahlutföll miðað við íslenskuna, að sögn hans.

Krafla hefur notið vinsælda hjá skröflurum hérlendis og er m.a. spilað á Íslandsmótum í skrafli. Nú hefur hann búið til skrafl sem krakkar geta líka spilað, Öskju. Hugmyndin kviknaði fyrir um ári þegar hann var beðinn um að kynna Kröflu í fimmta bekk grunnskóla, en hann hafnaði því þar sem spilið væri of erfitt fyrir nemendurna.

Sjá viðtal við Reyni í heild á baksíðu Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert