Guðlaugur Þór fundaði með Mattis

Guðlaugur Þór ásamt James Mattis.
Guðlaugur Þór ásamt James Mattis. Ljósmynd/Bandaríska varnarmálaráðuneytið

Samvinna Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum og innan Atlantshafsbandalagsins voru meðal umræðuefna á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og James Mattis, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, í Washington í dag.

„Samvinna Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum á sér langa sögu og hefur þróast í áranna rás. Undanfarin ár hefur samstarf ríkjanna farið mjög vaxandi samhliða breyttu öryggisumhverfi í Evrópu og á norðanverðu Atlantshafi. Atlantshafstengslin eru mikilvægari nú sem aldrei fyrr og gagnkvæmar skuldbindingar Íslands og Bandaríkjanna standa óhaggaðar. Við fórum yfir mikilvægi samstöðu vestrænna ríkja sem deila sömu gildum í því breytilega öryggisumhverfi sem við búum við,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.

Ljósmynd/Bandaríska varnarmálaráðuneytið

Á fundinum ræddu ráðherrarnir helstu áherslumál á vettvangi Atlantshafsbandalagsins í aðdraganda leiðtogafundar bandalagsins í sumar, þ.m.t. auknar áherslur á mikilvægi Norður-Atlantshafsins.

Einnig var loftrýmisgæsla og kafbátaleit og varnaræfingin Trident Juncture 2018 til umfjöllunar, auk helstu viðfangsefna á alþjóðavettvangi, þar með talin málefni Mið-Austurlanda og staða mála á Gaza. Málefni norðurslóða voru einnig rædd.

„Ísland er meðal stofnríkja Atlantshafsbandalagsins og borgaralegt framlag Íslands í þágu eigin og sameiginlegra varna bandalagsríkja, sem hefur farið vaxandi á umliðnum árum, er vel metið hér vestan hafs og Ísland álitið áreiðanlegt og trúverðugt bandalagsríki,“ segir Guðlaugur Þór í tilkynningunni.

Ljósmynd/Bandaríska varnarmálaráðuneytið

Utanríkisráðherra átti einnig fundi með Dan Sullivan og Lisu Murkowski, öldungadeildarþingmönnum Alaska, þar sem fríverslun og fjárfestingar, sem og málefni norðurslóða og fyrirhuguð formennska Íslands í Norðurskautsráðinu á næsta ári voru til umræðu.

Guðlaugur Þór átti í gær fundi með háttsettum embættismönnum í þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna þar sem málefni Mið-Austurlanda og samskiptin við Rússland voru til umræðu.

Þá ávarpaði ráðherra hugveituna Heritage Foundation þar sem viðskiptamál, öryggismál og norðurslóðamál voru í brennidepli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert