„Láttu þér líða vel“ verðlaunað

Frá afhendingu verðlaunanna.
Frá afhendingu verðlaunanna. Mynd/MOTIV/Pálmi Ásbjarnarson

Foreldraverðlaunin 2018 hlýtur verkefnið „Láttu þér líða vel“ en Guðrún Gísladóttir, kennari í Vogaskóla, fer fyrir verkefninu sem var ýtt úr vör fyrir um tveimur árum.

Að verkefninu koma fulltrúar nemenda, foreldra og kennara og skólastjórnendur. Þar er lögð áhersla á geðrækt og mikilvægi þess að byrja við upphaf skólagöngu að veita nemendum verkfæri til að stjórna eigin líðan og hegðun, að því er segir í tilkynningu.

„Í skólanum hefur m.a. verið boðið upp á jóga, slökun og núvitundarþjálfun, ásamt fræðslu sem nýtist börnum bæði í skólanum og heima fyrir. Markmiðið er að vinna gegn andlegri vanlíðan, s.s. kvíða, lágu sjálfsmati og þunglyndi sem rannsóknir sýna að er því miður vaxandi vandamál meðal grunnskólabarna,“ segir í tilkynningunni.

Þar segir einnig að áhersla sé lögð á að styrkja sjálfstraust og sjálfsmynd nemenda og sýna fram á fjölbreytileika samfélagsins þar sem allir eigi jafnan rétt á að vera þeir sjálfir.

Sigrún Edda Eðvarðsdóttir, formaður dómnefndar, sagði við afhendingu verðlaunanna að það að hlúa að geðheilsu og að styrkja sjálfsmynd barna myndi ekki einungis efla nemendur og bæta líðan þeirra heldur hefði það einnig jákvæð áhrif á námsárangur, skólastarf og skólabrag. Verkefnið myndi enn fremur efla samstarf heimila og skóla með hagsmuni barna og samfélagsins að leiðarljósi. Guðrún sagði verðlaunin vera gríðarlega hvatningu til að halda áfram á sömu braut og gera meira.

Dugnaðarforkur Heimilis og skóla 2018 er Birgitta Bára Hassenstein sem hefur verið formaður SAMFOK, samtaka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, í fjögur ár og þar áður sat hún í stjórn samtakanna.

„Birgitta Bára brennur fyrir málefnum og réttindum barna í grunnskólum og er leitun að annarri eins ástríðu og dugnaði,“ segir í tilkynningunni.  

Hún er áheyrnarfulltrúi foreldra í skóla- og frístundaráði Reykjavíkur og hefur setið í fjölmörgum starfshópum sem fjalla um málefni grunnskólans, allt í sjálfboðavinnu.

Foreldraverðlaun Heimilis og skóla voru nú afhent í 23. sinn og afhenti Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, verðlaunin ásamt Önnu Margréti Sigurðardóttur, formanni Heimilis og skóla.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert