Menningarhús reist á Egilsstöðum

Frá Egilsstöðum.
Frá Egilsstöðum. mbl.is/Sigurður Bogi

Samkomulag á milli mennta- og menningarmálaráðuneytis og Fljótsdalshéraðs um stofnframlag til byggingar menningarhúss á Egilsstöðum verður undirritað á þriðjudaginn.

Samkomulagið gerir ráð fyrir að stofnframlaginu verði varið til uppbyggingar menningarhúss í Sláturhúsinu sem verði gert að fjölnota menningarhúsi sem rúma skuli m.a. sviðslistir, tónlist, sýningar og vinnustofur, að því er kemur fram í tilkynningu.

Einnig verði reist ný burst við Safnahúsið, líkt og ráð var fyrir gert í upprunalegum teikningum, sem verði til að bæta aðstöðu fyrir safnkost, sýningar og til fyrirlestrahalds, auk aðstöðu fyrir fræði- og rannsóknarstörf.

Markmið samkomulagsins er að framangreindar byggingar verði ekki einungis vettvangur menningar- og safnastarfsemi á Fljótsdalshéraði heldur að þær gegni einnig lykilhlutverki sem slíkar á Austurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert