Sjómennirnir tveir sem voru um borð í trillu sem sökk í Skagafirði í kvöld voru í töluverðan tíma í sjónum áður en björgunarsveit frá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg kom á vettvang.
Að sögn Ingimundar Ingvarssonar, sem stjórnaði aðgerðum fyrir hönd Landsbjargar frá Sauðárkróki, leið um hálftími frá því að þeir fengu útkallið þangað til þeir voru komnir á staðinn.
Þá voru mennirnir í björgunargöllum ofan í sjónum við trilluna, sem var hálfsokkin. Mennirnir höfðu áður náð sambandi við Landhelgisgæsluna í gegnum talstöð.
Hann segir að mennirnir hafi verið í góðu ásigkomulagi og ekkert mál hafi verið að kippa þeim upp úr sjónum. Hann bætir við að samkvæmt sjúkraflutningamönnum hafi ekkert ekkert amað að mönnunum líkamlega.
Aðspurður segist hann ekki vita hvað gerðist. Hugsanlega fékk trillan brot á sig en skipverjarnir voru ekki að draga net.
Um var að ræða fjögurra og hálfs tonna trillu.
Síðast þegar björgunarsveitin sá hana áður en sveitin fór til baka stóð stefnið á henni upp úr sjónum.