Eldur í potti í mannlausu húsi

Tilkynningu barst slökkviliðinu á Akureyri skömmu fyrir klukkan fimm um að reykur kæmi út úr íbúðarhúsi við Höfðahlíð. Kom í ljós að eldur var í potti á eldavél en húsið var mannlaust.

Einhverjar skemmdir urðu vegna eldsins og sömuleiðis reyksins. Slökkviliðsmenn reykræstu húsið eftir að hafa slökkt eldinn og gengu síðan úr skugga um að engar glóðir væru eftir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert