Leit við Ölfusá hætt í bili

Leit hefur staðið yfir með hléum frá því á sunnudag.
Leit hefur staðið yfir með hléum frá því á sunnudag. mbl.is/Sigmundur G. Sigurgeirsson

Leit að manni sem talið er að hafi stokkið í Ölfusá aðfaranótt sunnudags hefur ekki borið árangur. Um 30 björgunarsveitarmenn leituðu meðfram ánni og í grennd við hana í dag.

Leit hófst klukkan fimm síðdegis og samkvæmt upplýsingum frá Gunn­ari Inga Friðriks­syni, verk­efna­stjóra svæðis­stjórn­ar björg­un­ar­sveit­anna, var ákveðið að hætta leit í bili laust fyrir klukkan níu í kvöld.

Þrátt fyrir ágætisveður í dag eru leitarskilyrðin erfið þar sem vatnsyfirborð árinnar hefur hækkað mikið frá því á sunnudag.

Björg­un­ar­sveit­armenn, meðal annars frá Suður­landi og Akra­nesi, tóku þátt í leitinni og gengu meðfram ánni. Þá voru einnig bátar, drónar og jet-ski notuð við leitina. Þyrla Landhelgisgæslunnar tók ekki þátt í leitinni í kvöld.

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um næstu formlegu leit en Gunnar Ingi segir að ákveðnu eftirlitshlutverki verði gegnt áfram, meðal annars með drónum.



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert