Innkalla fæðubótarefnið B-100 frá Now

Fæðubótarefnið B-100 frá Now inniheldur fjórfalt meira magn af B6-vítamíni …
Fæðubótarefnið B-100 frá Now inniheldur fjórfalt meira magn af B6-vítamíni en efri öryggismörk segja til um.

Icepharma hefur innkallað fæðubótarefnið B-100 frá Now, að höfðu samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, vegna þess að það inniheldur of mikið af B6-vítamíni.

Innköllunin á við B-100 fæðubótarefni frá Now, með strikanúmerinu 733739004369, öllum dagsetningum og öllum lotunúmerum. Nettómagn er 100 hylkja pakkning sem hefur farið í dreifingu um allt land.

Varan er framleidd af fyrirtækinu Now Foods í Bandaríkjunum og flutt inn af Icepharma.

Varan inniheldur 100 milligrömm af B6-vítamíni í ráðlögðum daglegum neysluskammti. Efri öryggismörk fyrir fullorðna samkvæmt Matvælaöryggisstofnun Evrópu (EFSA) er hins vera 25 milligrömm af vítamíninu á dag.

Neytendum sem keypt hafa vöruna er bent á að neyta hennar ekki eða farga henni. Nánari upplýsingar veitir Icepharma í síma 540-8000.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert