„Krakkarnir öðlast framtíðarsýn“

Krakkar á unglingastigi í Brúarskóla útskrifaðir eftir níu vikna námskeið …
Krakkar á unglingastigi í Brúarskóla útskrifaðir eftir níu vikna námskeið á vegum Dale Carnegie. Lengst til vinstri er Rakel Klara Magnúsdóttir, þjálfari og sviðstjóri barna- og unglingadeildar Dale Carnegie. mbl.is/​Hari

Útskrift hóps nemenda á unglingastigi í Brúarskóla var með óhefðbundnu sniði í ár. Útskriftin markar endalok níu vikna samstarfsverkefnis Dale Carnegie og Brúarskóla þar sem markmiðið er að styrkja og efla sjálfsmynd og samskiptafærni barna í námi.

Nemendur fögnuðu áfanganum með foreldrum eða forráðamönnum og fluttu allir ræðu við tilefnið. Samstarfið er styrkt af Velferðarsjóði barna en sjóðurinn og Dale Carnegie hófu sína vegferð fyrir tæpum tveimur árum og hafa á þeim tíma útskrifað um 100 nemendur í Dale Carnegie-fræðum, þá fyrst og fremst börn á aldrinum 10-12 ára. Þau hafa þó einnig tekið að sér sérverkefni með eldri börnum líkt og í Brúarskóla.

Brúarskóli er skóli fyrir börn með hegðunarvandamál, sem rekja má til ýmissa erfiðleika. Í umfjöllun um mál þetta í Morgunblaðinu í dag segist Ragna Klara Magnúsdóttir, umsjónarmaður barna- og unglingasviðs Dale Carnegie, yfir sig ánægð með samstarfið.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert