Hænsnaeigandi sviptur 20 hænum

Ábending barst um málið frá heilbrigðiseftirlitinu.
Ábending barst um málið frá heilbrigðiseftirlitinu. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Matvælastofnun hefur svipt hænsnaeiganda á Suðvesturlandi öllum hænum sínum vegna slæms aðbúnaðar og umhirðu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Matvælastofnun.

Um tuttugu garðhænsni var að ræða sem bjuggu við mikinn óþrifnað og myrkur.

Matvælastofnun barst ábending um málið frá heilbrigðiseftirlitinu í lok síðustu viku. Aðgerðir voru ekki taldar þola bið og var gripið til vörslusviptingar á staðnum.

Fuglunum hefur verið komið fyrir í bráðabirgðahúsnæði á meðan unnið er að því að ráðstafa þeim annað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert