Féll marga metra í Esjunni

mbl.is/Ófeigur Lýðsson

Tilkynnt var um slys í hlíðum Esju skömmu fyrir klukkan eitt í nótt samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Erlendur ferðamaður á fertugsaldri var að ganga á hálum stórgrýttum slóða þegar hann hrasaði og féll marga metra. Hann hlaut áverka í andliti og á höfði og var fluttur með sjúkrabíl á slysadeild. Ekki liggja fyrir nánari upplýsingar um líðan hans.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert