Lifa að meðaltali sex árum lengur

Íslenskir karlar lifa að meðaltali lengst allra karla í Evrópu.
Íslenskir karlar lifa að meðaltali lengst allra karla í Evrópu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Meðalævilengd íslenskra karla er sú mesta í Evrópu en frá 1987 hafa karlar bætt við sig tæplega sex árum og konur rúmlega fjórum í meðalævilengd Á 10 ára tímabili var ungbarnadauði á Íslandi að meðaltali 1,7 af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn fátíður og hér. Þetta er meðal þess sem kemur fram í nýrri frétt á vef Hagstofu Íslands.

Árið 2017 var meðalævilengd karla 80,6 ár og meðalævilengd kvenna 83,9 ár á Íslandi. Meðalævilengd sýnir hve mörg ár einstaklingur á að meðaltali ólifuð við fæðingu, ef miðað er við aldursbundna dánartíðni mannfjöldans. Aldursbundin dánartíðni hefur lækkað á undanförnum áratugum og má því vænta þess að fólk lifi að jafnaði lengur en reiknuð meðalævilengd segir til um.

Á 10 ára tímabili (2007–2016) var meðalævi karla á Íslandi og í Sviss 80,5 ár og skipuðu þeir fyrsta sætið í Evrópu. Fast á hæla þeirra komu karlar í Liechtenstein (80,1 ár), Svíþjóð (79,9) og Ítalíu (79,8), síðan á Spáni og í Noregi (79,4 ár). Styst var meðalævilengd evrópskra karla í Moldavíu (65,8), Úkraínu (65,1) og Rússlandi (62,3).

Á sama tíma var meðalævi kvenna á Spáni 85,5 ár og í Frakklandi 85,4 ár og skipuðu þær fyrsta og annað sæti í Evrópu. Næst á eftir komu konur í Sviss (85,0), Ítalíu (84,8), Liechtenstein (84,2) og á Íslandi (83,9). Meðalævilengd kvenna var styst í Úkraínu (75,6), Rússlandi (74,4) og Moldavíu (73,8).

Árið 2017 létust 2.239 einstaklingar sem búsettir voru á Íslandi, 1.124 karlar og 1.115 konur. Dánartíðni var 6,5 látnir á hverja 1.000 íbúa og ungbarnadauði 2,7 börn af hverjum 1.000 lifandi fæddum árið 2017.

Á 10 ára tímabili (2007–2016) var ungbarnadauði á Íslandi að meðaltali 1,7 af hverjum 1.000 lifandi fæddum. Hvergi í Evrópu var ungbarnadauði jafn fátíður og hér. Ungbarnadauði var að meðaltali 1,8 í Andorra, 2,0 í San Marino, 2,3 í Finnlandi og Slóveníu og 2,5 í Svíþjóð. Tíðastur var ungbarnadauði í Tyrklandi, 12,4 af hverjum 1.000 lifandi fæddum.

Frétt Hagstofu Íslands

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert