Fimmtán vilja stýra nýju sveitarfélagi

Fuglalíf í Sandgerði. Fimmtán vilja leiða nýtt sameinað sveitarfélag.
Fuglalíf í Sandgerði. Fimmtán vilja leiða nýtt sameinað sveitarfélag. mbl.is/Sigurður Bogi

Nítján manns sóttu um starf bæjarstjóra hins nýja sameinaða sveitarfélags Sandgerðisbæjar og Sveitarfélagsins Garðs. Fjórir umsækjendur drógu hins vegar umsóknir sínar til baka áður en þær voru opinberaðar, svo eftir standa fimmtán.

Frá þessu er greint á nýrri vefsíðu hins ónefnda sveitarfélags sem hefur hið þjála lén gardurogsandgerdi.is. Fimm konur og tíu karlar eru í hópi þeirra fimmtán umsækjenda sem bæjarstjórn metur nú í samstarfi við ráðgjafafyrirtækið Hagvang.

Magnús Stefánsson sem starfað hefur sem bæjarstjóri Garðs sækir um starfið og einnig Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri Skútustaðahrepps.

Umsækjendurnir fimmtán eru:

  1. Anna Gréta Ólafsdóttir, sérfræðingur
  2. Ármann Johannesson, ráðgjafi
  3. Baldur Þ. Guðmundsson, sjálfstætt starfandi
  4. Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri
  5. Björn Ingi Knútsson, ráðgjafi
  6. Eysteinn Jónsson, sérfræðingur
  7. Gunnólfur Lárusson, rekstrar- og verkefnastjóri
  8. Hjördís Dröfn Vilhjálmsdóttir, sjálfstætt starfandi
  9. Kikka Kristlaug María Sigurðardóttir, kosningastjóri
  10. Magnús Stefánsson, bæjarstjóri
  11. Ólafur Örn Ólafsson, áhafnastjóri
  12. Özur Lárusson, framkvæmdastjóri
  13. Rakel G. Brandt, M.Sc
  14. Stefanía G. Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri
  15. Þorsteinn Gunnarsson, sveitarstjóri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert