Skilar fálkaorðunni vegna Kjærsgaard

Elísabet Ronaldsdóttir.
Elísabet Ronaldsdóttir. mbl.is/Árni Sæberg

Kvikmyndagerðarkonan Elísabet Ronaldsdóttir greinir frá því á Facebook-síðu sinni að hún ætli að skila fálkaorðu sem hún var sæmd 1. janúar árið 2016. Elísabet segist ekki geta verið í riddaraklúbbi með kynþáttahatara.

Ég tók mér nokkurn tíma til umhugsunar því margur svartur sauðurinn hefur þegið sömu viðurkenningu og þó ég sé almennt lítið gefin fyrir heiðursmerki, hugsaði ég hlýtt til þeirra sem tilnefndu mig og töldu mig hennar verðuga. Ég tók því að lokum stolt við orðunni, fyrir hönd kynsystra minna í bransanum og fjölskyldunnar sem hefur fylgt mér gegnum allt,“ skrifar Elísabet á Facebook um það þegar hún var sæmd orðunni.

Pia Kjærsgaard flutti ræðu á hátíðarfundi á Þingvöllum.
Pia Kjærsgaard flutti ræðu á hátíðarfundi á Þingvöllum. mbl.is/Hari

Hún hafi fyrir stuttu komist að því að forseta danska þjóðþingsins, Pia Kjærsgaard, hafi verið afhentur stórriddarakross. „Pia Kjærsgaard, trúlega hættulegasti og mest sjarmerandi kynþáttahatari norrænna stjórnmála. Hún er orðin stórriddari Íslensku fálkaorðunnar,“ skrifar Elísabet og bætir við að nú þurfi að taka skýra afstöðu gegn kynþáttahatri:

Það hefur alltaf verið þörf en nú er nauðsyn að taka skýra afstöðu gegn kynþáttahatri og fasisma sem fer sem eldur í sinu um bæði Evrópu og Norður Ameríku og því hef ég ákveðið að senda ykkur til baka mína fálkaorðu. Henni er hér með skilað. Ég get ekki verið í riddaraklúbbi með kynþáttahatara,“ skrifar Elísabet en færsla hennar er bréf sem send var orðunefnd forsetaembættisins.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert