Vill loka íslenskum sendiráðum

Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir rök fyrir íslenskum sendiráðum …
Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, segir rök fyrir íslenskum sendiráðum á örfáum stöðum. mbl.is/Ómar Óskarsson

„Sendiráð hafa vafalaust verið nauðsynleg fyrr á öldum og fram eftir 20. öldinni. En nú eru samgöngur á milli landa svo tíðar og auðveldar og fjarfundabúnaðir svo fullkomnir að það er ástæðulaust fyrir örþjóð eins og okkur að hafa slík útibú í öðrum löndum. Þeir sem þar starfa hafa í flestum tilvikum ekkert að gera.“

Þetta ritar Styrmir Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Morgunblaðsins, á vefsíðu sína í dag. Tilefnið er ákvörðun Elísabetar Ronaldsdóttur kvikmyndagerðarkonu um að skila fálkaorðu sinni í kjölfar þess að upplýst var að Pia Kjærsgaard, forseti danska þingsins og fyrrverandi leiðtogi Danska þjóðarflokksins, hefði verið veitt orðan.

Styrmir segir að ákvörðun Elísabetar minni á það hvað orður séu. „Þær eru glingur og prjál, leifar frá liðnum tíma. Við eigum að leggja þær niður ásamt öðru slíku. Þar má nefna sendiráð og sýndarmennskuna í kringum þau.“ Hann segir að rök séu fyrir íslenskum sendiráðum á örfáum stöðum, aðallega hjá alþjóðastofnunum sem Ísland eigi aðild að.

„Þau rök sem stundum heyrast að við getum ekki lokað sendiráðum af því að þá loki aðrar þjóðir sendiráðum hér eru fáránleg. Hvað með það? Í leiðinni mætti þurrka út aðrar leifar liðins tíma, það eru svörtu límúsínurnar fyrir framan stjórnarráðið.  Þær eru hlægilegar. Ætli það sé rétt að þær séu nú með skotheldu gleri, þar sem lífi ráðherra okkar væri ella stefnt í hættu? Þessi tákn hins opinbera valds eru ekki lengur í samræmi við tíðarandann.“

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert