„Hugsanlega - rétt hugsanlega“ von á hlýrra lofti

Trausti Jónsson veðurfræðingur rýnir í þetta kort á bloggsíðu sinni …
Trausti Jónsson veðurfræðingur rýnir í þetta kort á bloggsíðu sinni í morgun. Hann sér vísbendingar um breytingar á veðurlagi. Af bloggi Trausta Jónssonar

Trausti Jónsson veðurfræðingur veltir fyrir sér hvort hægfara breytingar til batnaðar séu í vændum á veðurlagi á landinu. Hann segir þetta enn spurningu en á „þriðjudag og miðvikudag fer þó fram tilraun sem rétt er að gefa gaum þó að líklegast sé að hún renni út í sandinn eins og þær fyrri“.

Á bloggi sínu í dag birtir Trausti kort s em sýnir sjávarmálsþrýsting, úrkomu og hita síðdegis á þriðjudag næstkomandi.  „Ísland er í þrýstiflatneskju - lægðir og smálægðardrög við landið og þar af leiðandi skýjað víðast hvar - og e.t.v. dálítil úrkoma. En snörp lægð er við suðurodda Grænlands á leið til austsuðausturs. Hún er tengd slitri út úr meginkuldapolli norðurslóða - hann hefur verpt eggi eins og ritstjóri Hungurdiska hefur stundum orðað það,“ skrifar Trausti en Hungurdiskar eru nafnið á bloggi hans. 

Svo skrifar Trausti:

„Kalt heimskautaloft streymir til suðurs framhjá Grænlandi suðvestanverðu og út á Atlantshaf. Framrásin er nægilega öflug til að búa til myndarlega lægðarhringrás sem mun um síðir teygja sig til suðurs og austurs og hugsanlega - rétt hugsanlega - grípa þar eitthvað af hlýrra lofti og færa í átt til Íslands. 

Þó að lægðin nýja grípi e.t.v. í tómt ætti niðurstaðan samt að verða sú að ríkjandi áttir verði heldur austlægari en verið hefur. En svo gæti líka farið svo að við fáum þetta kalda loft úr vestri bara yfir okkur seinna í vikunni - rétt eins og algengast hefur verið í sumar og aftur verði að bíða í nokkra daga eftir nýju færi.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert