Leita bílstjóra sem ók rakleiðis af vettvangi áreksturs

Peugeot-bíllinn er mikið skemmdur.
Peugeot-bíllinn er mikið skemmdur. Ljósmynd/Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar ökumanns silfurlitaðrar Audi-fólksbifreiðar, sem lenti í árekstri við ljósgráan Peugeot á Reykjanesbraut í Hvassahrauni skömmu fyrir miðnætti í gærkvöld. Umferðaróhappið var tilkynnt til lögreglu klukkan 23.47.

Peugeot-bifreiðinni, sem er nú mikið skemmd, var ekið vestur Reykjanesbraut þegar áreksturinn varð og hafnaði hún utan vegar. Tveir voru í bílnum og voru báðir fluttir á slysadeild til aðhlynningar, samkvæmt því sem fram kemur í tilkynningu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Ökumaður Audi-bifreiðarinnar skeytti í engu um áreksturinn og ók rakleiðis af vettvangi, en talið er að ökutækið sé með evrópskt bílnúmer,“ segir í frétt lögreglunnar.

Þeir sem búa yfir vitneskju um silfurlitaða Audi-bílinn og ökumann hans eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444-1000.

Upplýsingum má einnig koma á framfæri í tölvupósti á netfangið  helgig@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, en lögreglan hvetur jafnframt ökumanninn til að gefa sig fram.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert