Einstæð móðir sem Morgunblaðið ræddi við er í miklum vandræðum vegna þess að sonur hennar fær ekki fulla vistun á frístundaheimili í Reykjavík í vetur.
Vegna manneklu er ekki hægt að bjóða öllum börnum í fyrsta til fjórða bekk fulla vistun.
Í umfjöllun um ástandið á frístundaheimilum í Morgunblaðinu í dag segist skrifstofustjóri frístundamála hjá Reykjavíkurborg vera bjartsýnn á að fleiri ráði sig bráðlega til starfa.