Vann eina og hálfa milljón

Aðalvinningur kvöldsins gekk ekki út að þessu sinni.
Aðalvinningur kvöldsins gekk ekki út að þessu sinni.

Hvorki fyrsti né annar vinningur gengu út í Víkingalottóútdrætti kvöldsins. Einn heppinn miðaeigandi fékk hins vegar hinn alíslenska þriðja vinning og hlýtur hann 1.454.440 krónur. Miðinn var keyptur í Kúlunni, Réttarholtsvegi 1 í Reykjavík.

Tveir voru með fjórar réttar tölur í réttri röð í Jóker og fá 100 þúsund krónur hvor. Báðir miðarnir eru í áskrift.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert