Réðust á mann með öxi í Kópavogi

mbl.is/Arnþór Birkisson

Karl og kona voru handtekin við Smáralind í Kópavogi fyrr í kvöld vegna átaka þar sem öxi var dregin upp. Þetta kemur fram á Vísi.is og haft er eftir lögreglu að átökin megi rekja til innheimtu á skuld. Sá sem varð fyrir árásinni er sagður vera með minniháttar áverka.

Fram kemur í frétt Vísis að um einhvers konar uppgjör hafi verið að ræða sem leitt hafi til átaka þar sem öxin var dregin upp. Fólkið sem að árásinni stóð er nú vistað í fangageymslu.

Ekki náðist í lögreglu vegna málsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert