Fótbrotnaði á göngu við Langasjó

Franskur ferðamaður hrasaði á göngu við Langasjó um fjögurleytið í dag og var björgunarsveit kölluð út til að aðstoða við að koma honum undir læknishendur, en talið var að hann væri fótbrotinn. Þyrla Landhelgisgæslunnar var sett í viðbragðsstöðu en hennar reyndist ekki þörf. Ekki lágu fyrir frekari upplýsingar um málið hjá lögreglunni á Suðurlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert