Fyrstu umræðu um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar lauk um klukkan 23:00 í kvöld og hefur frumvarpið verið afgreitt til annarrar umræðu og fjárlaganefndar.
Frumvarpið varkynnt á þriðjudaginn og mælti Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra fyrir því í gær. Umræður um það fóru fram í kjölfarið og lauk þeim í kvöld.
Forseti Alþingis, Steingrímur J. Sigfússon, þakkaði þingmönnum við lok umræðunnar í kvöld fyrir góða umræðu um hversu vel samkomulag um hana hefði haldið.