Fundu talsvert af kannabisefnum í flugvél

mbl.is/Kristinn Freyr Jörundsson

Lögreglumenn í flugstöðvardeild lögreglunnar á Suðurnesjum voru um helgina kvaddir um borð í flugvél á Keflavíkurflugvelli þar sem hreingerningarfólk hafði fundið fíkniefni við eitt sæti hennar.

Um var að ræða talsvert magn af kannabisefnum í loftþéttum plastumbúðum ofan í plastíláti að sögn lögreglunnar á Suðurnesjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert