Borgarfulltrúar hafa fengið fjölda ábendinga frá núverandi og fyrrverandi starfsmönnum Orkuveitu Reykjavíkur eftir að framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar var rekinn fyrir ósæmilega hegðun, að því er fram kom í kvöldfréttum RÚV.
Málið var rætt á fundi borgarráðs í morgun og komu fulltrúar úr stjórn Orkuveitunnar á fundinn og upplýstu þar borgarfulltrúa um stöðuna.
Haft var eftir Eyþóri Arnalds, oddvita Sjálfstæðisflokksins, að málið sé stærra en þegar hafi komið fram og vísaði þar m.a. til mikillar starfsmannaveltu.
Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs, tók í sama streng. „Við höfum fengið alls kyns sendingar frá fyrrverandi starfsmönnum, núverandi starfsmönnum og fleirum í öðrum fyrirtækjum,“ sagði hún.
Þá sagði Þórdís Lóa í samtali við mbl.is fyrr í dag að borgarráð hafi lagt á það „mikla áherslu“ að í úttektinni sem senn verður unnin innan OR verði „farið ofan í allt þetta ferli, meðal annars hennar uppsögn og fleiri ef þær eru fyrir hendi,“ jafnvel aftur í tímann svo að skýr mynd dragist upp fyrir borgaryfirvöldum.