Vatnið úr göngunum nýtt

Vatnstökusvæðið í Vaðlaheiðargöngum. Búið er að setja upp safnkerfi og …
Vatnstökusvæðið í Vaðlaheiðargöngum. Búið er að setja upp safnkerfi og steypa þró.

Norðurorka hf. á Akureyri vinnur nú að því í samvinnu við Vaðlaheiðargöng hf. að beisla kalda vatnið sem sprettur fram úr misgengi inni í jarðgöngunum í gegnum Vaðlaheiði.

„Við ætlum að nota þetta sem neysluvatn fyrir Akureyringa,“ sagði Stefán H. Steindórsson, sviðstjóri veitu- og tæknisviðs Norðurorku í Morgunblaðinu í dag. „Það er miðað við að taka þarna 70 lítra á sekúndu. Þeir verða notaðir fyrir almenning á svæðinu.“ Þetta vatnsmagn fer nærri því að fullnægja allt að helmingi notkunar bæjarbúa á köldu vatni.

Norðurorka hefur útbúið safnkerfi í misgenginu þar sem vatnið sprettur fram. Búið er að steypa safnþró og verður vatnið leitt úr henni 5,4 km leið út úr göngunum og áfram aðra 4-5 km til Akureyrar. Stefnt er að því að tengja uppsprettuna í göngunum við vatnsveituna á Akureyri árið 2020.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert