Heimilsofbeldi í austurhluta Reykjavíkur

Ungur maður var handtekinn vegna heimilisofbeldis.
Ungur maður var handtekinn vegna heimilisofbeldis. mbl.is/Eggert

Ungur maður var handtekinn í austurhluta Reykjavíkur vegna heimilisofbeldis um klukkan níu í morgun. Sérsveit Ríkislögreglustjóra tók þátt í aðgerðinni.

Þetta staðfestir lögreglan á höfuðborgarsvæðinu í samtali við mbl.is, en nánari upplýsingar um málið verða ekki veittar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert