Loka fyrir nýjar umsóknir hjá Brynju

600 umsækjendur eru á biðlista eftir leiguíbúðum.
600 umsækjendur eru á biðlista eftir leiguíbúðum. mbl.is/Sigurður Bogi

Vegna gríðarlegrar fjölgunar umsókna hjá Brynju, hússjóði Öryrkjabandalagsins, er ekki lengur unnt að taka við nýjum umsóknum. Nú er svo komið að 600 umsækjendur eru á biðlista eftir leiguíbúðum og útilokað að nýjar umsóknir gætu komið til afgreiðslu á næstu árum.

Þetta kemur fram á heimasíðu Brynju.

Fram kemur, að með móttöku nýrra umsókna væri einungis verið að viðhalda óraunhæfum væntingum og beina athygli frá því neyðarástandi sem sé uppi í húsnæðismálum öryrkja.

„Stjórn Brynju hússjóðs þykir miður hvernig komið er og væntir þess að stjórnvöld bregðist við af þeirri ábyrgð sem þeim ber,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert