„Þetta viðtal vekur óhug; hvernig lífið gengur í myrkustu afkimum þjóðfélagsins,“ ritar Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins í Suðurkjördæmi, á Facebook-síðu sína í gærkvöldi.
Tilefnið er viðtal sem birtist í Morgunblaðinu í gær við sr. Vigfús Bjarna þar sem hann lýsti reynslusögum úr hörðum fíkniefnaheimi og hve hart handrukkarar ganga orðið fram gagnvart fólki.
Hefur Ásmundur óskað eftir því við formann velferðarnefndar Alþingis að sr. Vigfús Bjarni verði kallaður fyrir nefndina og upplýsi þingmenn um stöðuna.