Bjarni ráðinn framkvæmdastjóri Votlendissjóðs

Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs.
Bjarni Jónsson, framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. Ljósmynd/Aðsend

Bjarni Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Votlendissjóðs. Hann hefur starfað síðustu 10 árin sem framkvæmdastjóri félagasamtaka nú síðast fyrir Siðmennt og áður fyrir garðyrkjubændur.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Votlendissjóðurinn hefur það hlutverk að vinna að endurheimt votlendis í samstarfi við landeigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga. Fjölmargir sérfræðingar eru í baklandinu og veita sérfræðiráðgjöf eins og Landgræðslan, Landbúnaðarháskólinn, Fuglavernd, Rannsóknarsetur HÍ á Suðurlandi og Náttúrustofurnar, Náttúrufræðistofnun, PWC, Vegagerðin, Háskóli Íslands o.fl.

Markmið Votlendissjóðs er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda úr náttúru Íslands með endurheimt votlendis. Hlutverk hans er að efla samstarf við landeigendur, ríki, sveitarfélög, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga, að því er segir í tilkynningu. 

Þá segir að sjóðurinn sé ekki rekinn í hagnaðarskyni.

„Endurheimt votlendis er afar mikilvægur þáttur í að minnka losun gróðurhúsalofttegunda til þess að ná markmiðum sem Ísland hefur sett sér fyrir árið 2030. Með þeim nást markmið Sameinuðu þjóðanna að draga úr hlýnun jarðar,“ segir í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert