Secret Solstice verði umfangsminni

Secret Solstice-hátíðin mun fara fram í júní.
Secret Solstice-hátíðin mun fara fram í júní. mbl.is/Valli

Secret Solstice-hátíðin mun eingöngu fara fram á Þróttaravellinum næsta sumar og verður ekki eins umfangsmikil og hún hefur verið á undanförnum árum. Þá mun hún höfða til eldri markhópa, auk þess sem eftirlit verður aukið og tryggt að hátíðin fari sem best fram.

Þetta kemur fram í bókun borgarráðsfulltrúa Samfylkingarinnar, Viðreisnar, Pírata og Vinstri grænna á fundi borgarráðs sem fór fram í gær. Þar kemur fram að hátíðin sé orðin fastur punktur í lífi margra Reykvíkinga þar sem Laugardalurinn sé lagður undir risatónlistarhátíð.

„Samráð hefur verið með ágætum frá upphafi hátíðarinnar og vankantar sniðnir af með aukinni reynslu og þekkingu tónleikahaldara. Núverandi samráð byggir á því að hátíðin verði eingöngu á Þróttaravellinum og því ekki eins umfangsmikil og á undanförnum árum. Þá muni hún höfða til eldri markhópa, eftirlit verði aukið og tryggt að hátíðin fari sem best fram,“ segir í bókun meirihlutans.

Telja að hátíðin eigi ekki heima í Laugardalnum

Flokkur fólksins telur að hátíðin eigi hins vegar ekki heima í Laugardalnum.

Það kemur fram í bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins. Hún er svohljóðandi: 

„Flokkur fólksins vill styðja það sem fram kemur í umsögnum foreldrafélaga í hverfinu sem telja að þessi hátíð, tónleikar í Laugardal – Secret Solstice 2019, eigi ekki heima í Laugardalnum. Þetta er sérstaklega nefnt í ljósi umræðu síðustu mánaða varðandi stöðu mála í neyslu ungs fólks á vímuefnum og hvernig sú þróun hefur breyst til hins verra. Fram hefur komið hjá foreldrum í kjölfar síðustu hátíðar „að mikil brotalöm var á skipulagi hátíðarinnar og framfylgd áfengiskaupalaga auk þess sem neysla og sala ólöglegra fíkniefna var mikil í tengslum við hátíðarhöldin“. Borgarfulltrúi veit að reynt hefur verið að gera ráðstafanir til að þessir hlutir fari ekki úr böndum. Engu að síður eru foreldrar áhyggjufullir. Flokkur fólksins gerir sér grein fyrir að margir eru ánægðir með þessa staðsetningu og hátíðina og reynt er að gera margt til að þessi hátíð sem önnur fari vel fram. En fyrir Flokk fólksins eru það hagsmunir barnanna sem eru í þessu sem öðru settir í forgang og vill borgarfulltrúi hlusta á foreldrar og taka tillit til áhyggna þeirra.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert